4.5.2009 | 19:07
Þinghópur Borgarahreyfingarinnar fer vel af stað
Það hafa verið kaldar kveðjurnar sem heimilin í landinu hafa fengið frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar. Meðan ríkisstjórnin er ýmist í helgarfríi eða að þrasa um ESB þá eykst vandi heimilanna dag frá degi.
Þinghópur Borgarahreyfingarinnar fer vel af stað og virðist ætla að veita ríkisstjórninni aðhald. Bæði með skrifum einstaklinga í hópnum og eins með sameiginlegum yfirlýsingum. Meðan ríkisstjórnin er í sínum fílabeinsturni þá á þjóðin fulltrúa á þingi. Eða öllu heldur, koma til með að eiga fulltrúa á þingi þegar ríkisstjórninni þóknast að kalla þing saman.
Furða sig á ummælum ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bílar og akstur | Facebook
Athugasemdir
Þingflokkur ............
Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 4.5.2009 kl. 21:45
Nei, þinghópur er ágætt orð. Flokkar geta verið með þingflokk en varla hreyfing. Þinghreyfing væri heldur ekki gott orð en þinghópur er fínt orð. Það orð er tekið úr fréttinni sem vísað er til.
Jón Kristófer Arnarson, 4.5.2009 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.