Slæmar fréttir og góðar

Auðvitað eru pólitískar ráðningar í stjórnkerfinu ekki einsdæmi (frekar regla). Auðvitað vita líka allir hvernig pólitíkusar hafa notað áhrif sín til að þagga niður í fólki.
Vondu fréttirnar eru þær að enn virðist til fólk sem ver svona stjórnarhætti.
Góðu fréttirnar eru þær að þeim fer fækkandi sem verja slíkt.
Betri fréttir að fleiri og fleiri eru að átta sig á því að pólitísk spilling og óhæfir embættismenn er mein í þjóðlífinu sem þarf að uppræta ef okkur á að takast að komast upp úr kreppunni.
Enn betri fréttir að það styttist í kosningar þar sem Sjálfstæðisflokkur fær makleg málagjöld.
Allra bestu tíðindin að aldrei aftur ætlum við að fá í ráðherrastól spillta hrokagikki.
mbl.is Guðlaugur kemur af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komst skríllinn inn í Alþingishúsið?

Svo virðist vera ef marka má þessa frétt.
mbl.is Mótmælt við Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóð eða ekki þjóð

Nú eru að fæðast nýjar hugmyndir um hvernig lýðræði verði endurvakið á Íslandi.  Spurningin er ekki hvort gerðar verða grundvallar breytingar í íslensku stjórnkerfi og flokkakerfi heldur hvernig og hvenær.  ´

Nú dugir heldur ekki lengur það eitt að hrókera í ráðherrastólum. Jafnvel það að kjósa í vor dugir ekki því það festir einungis úrelt og spillt stjórnkerfi í sessi.  Krafan er að ríkisstjórnin víki tafarlaust og skipuð verði þjóðstjórn sem hefur það hlutverk að endurnýja traust þjóðarinnar á stjórnkerfinu og leggja grunn að nýju lýðræði og nýrri stjórnarskrá.

Verður það þjóðin sem mætir á Borgarafund eða þverskurður hennar?  Það held ég reyndar.  Það skiptir kannski ekki ekki öllu máli lengur.  Þjóðin vill breytingar og spurningin er því hvort stjórnmálaflokkarnir og formenn þeirra vilja eiga samleið með þjóðinni?  Því svo mikið er víst að þeir eru ekki þjóðin.


mbl.is Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnum þverpólitísk samtök um hugmynd Njarðar.

Sjá hér:  http://eyjan.is/blog/2009/01/11/thjodin-mun-ekki-lata-bjoda-ser-thetta-miklu-lengur-njordur-p-njardvik-vill-neydarstjorn-og-endurskodun-stjornskipunar/

 Njörður segir:

“Þjóðin getur kannski farið að neita að hlýða stjórnvöldum. Hvað gerist þá? Þá verður hér önþveiti og glundroði, sem getur verið farvegur fyrir lýðskrumara. Ég held að réttast væri að leysa þingið upp, ríkisstjórnin leggði niður völd og skipuð yrði neyðarstjórn til bráðabirgða, 12-16 mánaða.”

Nú þurfum við að stofna þverpólitísk samtök um þessa hugmynd.  Loksins er von.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband